Keppt í 21 iðngrein á Íslandsmóti iðn- og verkgreina
Íslandsmót iðn- og verkgreina fer fram í Laugardalshöll í Reykjavík dagana 16. – 18. mars næstkomandi. Gert er ráð fyrir að um 150 keppendur taki þátt í Íslandsmótinu og keppt verði í 21 iðngrein. Nokkrar greinar til viðbótar verða með kynningu á störfum en alls taka 27 iðn- og verkgreinar þátt í ár. Fagreinarnar bjóða einnig upp á „Prófaðu“ svæði þar sem gestir fá að fikta, smakka og upplifa. Samhliða Íslandsmótinu verður kynning á framhaldsskólum landsins og námsframboði þeirra.
Verkiðn – Skills Iceland eru samtök sem halda utan um Íslandsmót iðn- og verkgreina. Þau voru stofnuð árið 2010 og hafa síðan þá haldið Íslandsmót 2010, 2012 og 2014. Á þessum mótum hafa um 150 keppendur tekið þátt í um 20 iðngreinum.
Um 8 þúsund grunnskólanemendur í 9. - 10. bekk alls staðar af landinu kynna sér námsmöguleika og fjölbreytni iðngreina í Laugardalshöllinni. Heimsóknin er hugsuð sem liður í náms- og starfsfræðslu þessara nemenda og einn liður í að styrkja nemendur í að taka upplýsta ákvörðun um náms- og starfsval.
Á laugardeginum eru fjölskyldur sérstaklega velkomnar. Gefst þá tækifæri til að snerta og upplifa ýmislegt skemmtilegt sem snertir nám og störf í iðn- og verkgreinum. Team Spark kynnir rafmagnsbíl og einnig verður í boði að smakka kræsingar sem útbúnar hafa verið í keppninni.
Mótið fer fram í Laugardalshöll og er opið fyrir áhorfendur sem hér segir:
- Fimmtudaginn 16. mars kl. 9 – 16
- Föstudaginn 17. mars kl. 9 – 16
- Laugardaginn 18. mars kl. 10 – 14, fjölskyldudagur, fræðsla og fjör
Nánar á vefsíðunni Verkiðn.is.