Fréttasafn



22. apr. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Samtök rafverktaka

Konur í rafiðnaði í aðalhlutverki í fjórum myndböndum Sart

Samtök rafverktaka, Sart, hafa sett í loftið fjögur ný myndbönd á samfélagsmiðlum sem unnin eru upp úr ráðstefnu samtakanna um konur í rafiðnaði. Í myndböndunum er fjallað um lykilþætti sem skipta máli til að efla þátttöku kvenna í greininni, meðal annars mikilvægi jákvæðrar vinnustaðamenningar, skýrrar stefnumótunar gegn áreiti og einelti, aukins sýnileika kvenna og hlutverks fyrirmynda. Þá er einnig dregið fram hvernig fjölbreytt og blönduð teymi styrkja vinnustaði, bæta menningu og stuðla að betri árangri.

Hér fyrir neðan er hægt að nálgast myndböndin fjögur:

https://vimeo.com/1181331723

Hér er fjallað um mikilvægi þess að breyta hugsunarhætti og talsmáta á vinnustöðum, og mikilvægi þess að atvinnurekendur hafi skýra stefnu gegn áreiti og einelti til að tryggja öryggi og vellíðan allra starfsmanna.

https://vimeo.com/1181330333

Hér er rætt um þá ábyrgð sem hvílir á fyrirtækjum að gera störf kvenna sýnilegri þar sem sýnileiki og hvatning getur orðið til þess að konum fjölgi í rafiðnaði. 

https://vimeo.com/1181330277

Hér er rætt um mikilvægi þess að ungar stúlkur hafi skýrar fyrirmyndir í faginu og hvernig jafnvel lítil kynni af konum í rafiðnaði geta haft gríðarleg áhrif á áhuga þeirra á greininni.

https://vimeo.com/1181330381

Hér er rætt er um hvernig blandaðir vinnustaðir bæta menningu, auka umræðu og skila skilvirkari og arðbærari teymum.