Fréttasafn



6. mar. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki

Kynning fyrir félagsmenn á auglýsingu Bjargs

Bjarg íbúðafélag auglýsir um þessar mundir eftir samstarfsaðilum til að taka þátt í uppbyggingu hagkvæmra leiguíbúða. Íbúðafélagið hefur af þeim sökum óskað eftir aðkomu Samtaka iðnaðarins við kynningu á umræddri auglýsingu til félagsmanna.

Samtökin efna því til fundar þriðjudaginn 12. mars kl. 8.30 til 9.45 í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35 þar sem fulltrúi Bjargs mun fara yfir verkefnið sem og framtíðaráform félagsins.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, verður fundarstjóri. Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs, verður með framsögu á fundinum og að því loknu verða umræður.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Auglysing-Bjarg