Fréttasafn



1. okt. 2018 Almennar fréttir

Kynningarátak fyrir íslenskar vörur

Samtök iðnaðarins boðuðu félagsmenn sína á kynningarfund í Húsi atvinnulífsins í síðustu viku þar sem farið var yfir nýtt átak undir yfirskriftinni Íslenskt - gjörið svo vel. Með átakinu er ætlunin að auka vitund Íslendinga á íslenskum vörum og auka stolt þeirra með því að fá landsmenn til þess að mæla með sínum uppáhaldsvörum fyrir erlenda gesti. Því fleiri sem taka þátt í átakinu því áhrifaríkara verður það. Átakið hefst í október og áformað er að það standi fram eftir næsta ári.

Þau fyrirtæki sem vilja taka þátt í átakinu geta haft samband við Guðrúnu Birnu Jörgensen, viðskiptastjóra á framleiðslusviði SI, gudrunbj@si.is.

Fundur-24-09-2018