Fréttasafn



14. ágú. 2017 Almennar fréttir Nýsköpun

Kynningarfundur um styrki Tækniþróunarsjóðs

Rannís og Samtök iðnaðarins standa fyrir kynningarfundi með Tækniþróunarsjóði næstkomandi fimmtudag 17. ágúst kl. 8.30-10.00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Næsti umsóknarfrestur í sjóðinn er til 15. september. Skráning á fundinn.

Dagskrá

Sigurður Björnsson, sviðsstjóri á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, og Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís, fara yfir:

  • Styrkjaflokka Tækniþróunarsjóðs
  • Skattfrádrátt vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar
  • Reglugerð um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga

Fundarstjóri er Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður stefnumótunar og nýsköpunar hjá SI.