Lækkun gatnagerðargjalda er kærkomin stefnubreyting
„Þetta er kærkomin stefnubreyting hjá Reykjavíkurborg þegar kemur að uppbyggingu og gjaldtöku og er löngu tímabær,“ segir Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, í frétt Morgunblaðsins en samtökin fagna þeirri ákvörðun borgarráðs að lækka gatnagerðargjöld fyrir bílastæði í bílakjöllurum um 90%.
Jóhanna segir í frétt Morgunblaðsins að gjaldið hafi hækkað svo um munaði eða 26-faldast á einu bretti og farið úr tæplega 37 þúsund krónum í um 942 þúsund fyrir dæmigert 30 fermetra bílastæði í bílakjallara. „Við vorum gáttuð á þessu, vegna þess að þetta var í engu samræmi við þarfir sveitarfélagsins um að þétta byggð og taka minna pláss ofan jarðar fyrir bílastæði. Það er líka eðlileg stefnubreyting út frá hagsmunum sveitarfélagsins að ýta nýrri uppbyggingu áfram með þessum hætti,“ segir Jóhanna Klara sem kveðst jafnframt vonast til þess að þessi mál verði tekin til skoðunar í öðrum sveitarfélögum með sama hætti.
Morgunblaðið / mbl.is, 17. ágúst 2026.


