Fréttasafn



12. okt. 2018 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Landbúnaðarsýning opnar í Laugardalshöll

Nokkur aðildarfyrirtæki Samtaka iðnaðarins eru meðal tæplega 100 sýnenda sem koma saman á landbúnaðarsýningu sem opnuð var í Laugardalshöll í dag og stendur til 14. október. Í dag er opið til kl. 19.00, á morgun laugardag kl. 10.00–18.00 og sunnudag kl. 10.00–17.00. 

Myndin hér fyrir ofan var tekin við setningu sýningarinnar fyrr í dag. 

Á vef Bændasamtakanna er hægt að fá frekari upplýsingar. Fyrirtækið Ritsýn sf. stendur fyrir sýningunni.

Landbunadarsyning-12-10-2018-2-

Landbunadarsyning-12-10-2018-3-