Landslið íslenskra bakara í 2. sæti á Norðurlandameistaramóti
Landslið íslenskra bakara hreppti 2. sætið á Norðurlandameistaramóti bakara, Nordic Cup, sem var haldið í Weinheim í Þýskalandi dagana 11.-12. september. Þetta er besti árangur sem náðst hefur hjá liðinu frá upphafi. Viðstaddur keppnina var formaður Landssambands bakarameistara, Sigurður Már Guðjónsson.
Á vef mbl.is er sagt frá því að landsliðið hafi æft vel síðustu vikurnar undir leiðsögn Haraldar Árna Þorvarðarsonar sem er þjálfari liðsins.
mbl.is, 13. september 2023.
Á myndinni eru, talið frá vinstri, Sigurður Már Guðjónsson, formaður Landssambands bakarameistara. Árni Þorvarðarson, landsliðsþjálfari, Stefán Pétur Bachmann frá Hygge bakaríi, Matthías Jóhannesson frá Passion bakaríi og Smári Yngvason frá Gæðabakstri/Ömmubakstri.