Fréttasafn



12. okt. 2016 Almennar fréttir

Launþegum í byggingarstarfsemi hefur fjölgað um 16%

Hagstofan birtir nýjar upplýsingar þar sem kemur fram að launþegum hefur fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Launþegum hefur hins vegar fækkað í greinum tengt sjávarútvegi, fræðslustarfsemi og opinberri stjórnsýslu. Launþegum í byggingarstarfsemi á einu ári hefur fjölgað um 1.500 eða um 16% og launþegum í ferðaþjónustu um 3.800 eða 16%. Hagstofan bendir þó á að hafa þurfi í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

Flestir launagreiðendur með færri en 5 starfsmenn

Þegar horft er til skiptingu launagreiðenda kemur fram að 71% launagreiðenda er með færri en 5 launþega en þeir launþegar eru rúmlega 19 þúsund. Hinir rúmlega 4.700 launagreiðendurnir eru hins vegar með 182 þúsund launþega á sínum snærum sem er 97% launþega. Á 12 mánaða tímabili, frá september 2015 til ágúst 2016, voru 16.386 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 585 eða 3,7% frá síðustu 12 mánuðum á undan. 

Nánar á vef Hagstofunnar