Fréttasafn



27. ágú. 2026 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

Leiðrétting á rangfærslum Viðskiptaráðs Íslands - Fjórar útflutningsstoðir bera uppi hagkerfið

Samtök iðnaðarins gera athugasemdir við villandi framsetningu Viðskiptaráðs Íslands um útflutning íslensks hagkerfis í skýrslu sinni The Icelandic Economy 2026 og í örmyndbandi sem ráðið hefur birt um íslenska hagkerfið á samfélagsmiðlum. Hið rétta er að fjórar stoðir útflutnings skila 90% útflutningstekna. Viðskiptaráð getur ekki tækni- og hugverkaiðnaðar, þótt greinin hafi skilað 369 milljörðum króna í útflutningstekjur á síðasta ári og sé sú stoð sem gæti orðið sú verðmætasta á næstu árum.

Þrískipt mynd af útflutningi Íslands, þar sem sjávarútvegur, ferðaþjónusta og álframleiðsla standa undir útflutningi, var rétt fyrir tveimur áratugum en er það ekki lengur.

Staðreyndirnar tala sínu máli. Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar námu 369 milljörðum króna á síðasta ári, sem samsvarar 19% af heildarútflutningstekjum hagkerfisins. Frá árinu 2008 hafa þær áttfaldast, úr um 46 milljörðum króna. Velta greinarinnar árið 2025 nam ríflega 700 milljörðum króna, eða um tíunda hluta veltu viðskiptahagkerfisins, og það ár nam verðmætasköpun hennar ríflega 440 milljörðum króna. Um 18 þúsund manns starfa í tækni- og hugverkaiðnaði, eða um 8% allra starfandi á vinnumarkaði, og skattspor greinarinnar nam 186 milljörðum króna árið 2024.

Orkusækinn iðnaður stendur undur 21% útflutningstekna íslensks hagkerfis og tækni- og hugverkaiðnaður 19%. Ferðaþjónusta stendur undir 32% útflutningstekna og sjávarafurðir 18%.

Í nýlegri greiningu SI um umfang og áhrif tækni- og hugverkaiðnaðar á Íslandi koma þessar staðreyndir m.a. fram:

https://www.si.is/media/_eplica-uppsetning/Greining-SI_Umfang-og-ahrif-taekni-og-hugverkaidnadar-14-04-2026.pdf.

Samtök iðnaðarins hafa komið þessum athugasemdum á framfæri við Viðskiptaráð og hvetja þau til að leiðrétta þessar upplýsingar í umfjöllunum sínum um útflutningsstoðir Íslands.