Fréttasafn



26. maí 2025 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

Leiðtogar úr norrænu atvinnulífi kalla eftir samstilltu átaki til að efla samkeppnishæfni og öryggi

Á árlegum leiðtogafundi forsætisráðherra Norðurlandanna, sem haldinn var í Paimio í Finnlandi í dag 26. maí, komu saman forsætisráðherrar Norðurlanda og fulltrúar atvinnulífsins til að ræða áskoranir og tækifæri framtíðarinnar. Fundinn sóttu fulltrúar Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur, Finnlands, Álandseyja, Færeyja og Grænlands. Í sameiginlegri yfirlýsingu atvinnulífsins var hvatt til þess að efla samkeppnishæfni, móta iðnaðarstefnu, auka nýsköpun og efla öryggi á grunni norrænnar samvinnu og gilda.

Árni Sigurjónsson, formaður SI og yfirlögfræðingur Marel, tók þátt í umræðum og mótun yfirlýsingarinnar fyrir hönd íslenskra fyrirtækja. Samtök iðnaðarins tóku þátt í undirbúningi og skipulagningu fundarins með öðrum norrænum samtökum iðnaðar og atvinnulífs. Sérstaklega var rætt um hlutverk fyrirtækja varðandi viðnámsþrótt, um leiðir til að auka samkeppnishæfni og verðmætasköpun á Norðurlöndum og hlutverk fyrirtækja í framtíðaruppbyggingu Úkraínu. Framkvæmdastjóri SA sat einnig fundinn. 

Árni Sigurjónsson, formaður SI og yfirlögfræðingur Marel: „Öflugt og víðtækt norrænt samstarf skiptir íslenskt atvinnulíf miklu máli. Í sameiningu eru Norðurlöndin öflugur málsvari þeirra gilda sem við stöndum fyrir og sterk rödd Norðurlanda hefur mikil áhrif bæði innan Evrópu og um heim allan. Það var því einkar ánægjulegt að fá tækifæri til að eiga opin og heiðarleg skoðanaskipti um þau mál sem efst eru á baugi við forsætisráðherra Norðurlandanna í Paimio í Finnlandi í dag. Þetta er einstakur vettvangur fyrir okkur til að leggja stjórnvöldum lið í því óvissuástandi sem ríkir um þessar mundir, og sýnir skýrlega þá áherslu sem stjórnvöld leggja á samráð og samtal við fulltrúa iðnaðar og atvinnulífs.“

Fjárfesting í rannsóknum og þróun grundvöllur vaxtar

Evrópa hefur setið eftir þegar kemur að tækniþróun. Í yfirlýsingunni er skorað á stjórnvöld og fyrirtæki að auka fjárfestingu í rannsóknum, þróun og nýsköpun (RDI), bæði á landsvísu og á vettvangi Evrópusambandsins. Sérstök áhersla er lögð á aukna verðmætasköpun á grundvelli nýsköpunar með hvötum og aðgengi að fjármagni. Vel hefur gengið á Íslandi að auka fjárfestingar í rannsóknum og þróun en hugverkaiðnaður hefur fest sig í sessi sem fjórða útflutningsstoð íslensks hagkerfis og gæti orðið sú verðmætasta við lok þessa áratugar.

Græn iðnbylting sem samkeppnisforskot

Norræn atvinnulífsamtök lýsa yfir einhug um metnaðarfullar loftslagsaðgerðir og leggja áherslu á mikilvægi grænnar iðnbyltingar sem drifkrafts fyrir framtíðariðnað. Kallað er eftir einfaldari leyfisveitingaferlum, bættum aðgangi að fjármagni og skýrri iðnaðarstefnu sem stuðlar að fjárfestingu í sjálfbærum lausnum. Samstarf stjórnvalda og atvinnulífs er forsenda árangurs og þar geta íslensk stjórnvöld lært af árangursríku samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs á Norðurlöndum.

Ryðja þarf hindrunum úr vegi og efla öryggi

Í yfirlýsingunni er einnig bent á nauðsyn þess að ryðja hindrunum úr vegi innan norræna markaðarins. Þá er kallað eftir einföldun regluverks, meðal annars við innleiðingu ESB-reglugerða. Atvinnulífið gegnir jafnframt lykilhlutverki varðandi viðnámsþrótt og er hvatt til betri upplýsingamiðlunar og aukins samstarfs milli opinberra aðila og fyrirtækja um viðnámsþrótt. Stjórnvöld eru hvött til þess að styðja við uppbyggingu innviða með áherslu á samgöngur, fjarskipti og orku. Sérstök áhersla er lögð á mikilvægi stuðnings við Úkraínu og framtíðaruppbyggingu landsins.

Samtök iðnaðarins styðja samnorræna sýn

Samtök iðnaðarins taka undir mikilvægi þess að efla samstarf á Norðurlöndum um vöxt, nýsköpun, grænar lausnir og viðnámsþrótt. Með samstilltu átaki og skýrri framtíðarsýn má skapa öflugt rekstrarumhverfi sem styður við vöxt og alþjóðlega samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. SI leggja áherslu á að íslenskt atvinnulíf eigi að vera virkur þátttakandi í sameiginlegum verkefnum og stefnumörkun sem byggja á styrkleikum norræns samstarfs. 

54546585525_c3534600c7_oForsætisráðherrar Norðurlandanna og fulltrúar atvinnulífsins.

Island_1748262009158Fulltrúar Íslands á fundinum. Árni Sigurjónsson, formaður SI, Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, og Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. 

54546102126_1e98c74991_o

54546284074_6efb84d80c_o