Fréttasafn



4. mar. 2015 Iðnaður og hugverk

Leikurinn TINY KNIGHT gerður af Demon Lab vann Game Creator

Game Creator keppnin um besta tölvuleikinn fór fram í fjórða sinn á Háskóladeginum í Háskólanum í Reykjavík síðastliðinn laugardag. Tíu lið kepptu um besta tölvuleikinn, en keppnin er haldin á vegum Samtaka leikjaframleiðanda, IGI sem eru starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins á hugverkasviði, Háskólans í Reykavík og Margmiðlunarskólans. Keppnin er haldin árlega til að ýta undir nýsköpun og áhuga á leikjaiðnaði. Árið 2011 sigraði lið Lumenox, sem nýverið gaf út vinnings-leik sinn Auru´s Awakening. Í dag starfa átta manns í höfustöðum Lumenox hér á landi.

Tilkynnt var um vinningshafa Game Creator – keppni um besta tölvuleikinn – á Háskóladögum í HR um helgina.  Demon Lab hlaut 1. verðlaun fyrir leikinn Tiny Knight. Vinningsliðið er skipað þeim Hrafni Orra Hrafnkelssyni, Valdimar Jónssyni og Agli Erni Sigurjónssyni.

Tiny Knight er fyrstu persónu leikur þar sem spilarinn þarf að komast í gegnum hinar ýmsu hindranir á sem stystum tíma. 3D leikur með skemmtilegu erfiðleikastigi. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars: ,,Vel gerður og unninn leikur. Liðið var með skýra sýn sem er nauðsynleg til að fara með leikinn á næsta stig. Leikurinn hefur möguleika til að skera sig úr og slá í gegn.“

Ólafur Andri Ragnarsson formaður Samtaka leikjaframleiðanda stýrði verðlaunaafhendingunni og sagði þátttöku í keppninni framar vonum sem og gæðin á bestu leikjunum. ,, Áhugi á leikjagerð hefur farið vaxandi að undarförnu og ný fyrirtæki eru að spretta upp. Við erum klárlega á réttri leið með að byggja hér upp líflegan nýjan iðnað."

Verðlaunin voru m.a. 140.000 kr. styrkur frá Íslandsbanka og segir Sigríður Olgeirsdóttir framkvæmdastjóri rekstrar og upplýsingatæknisviðs bankans styrkinn vera hugsaðan til að hefja næstu skref við vinnslu leiksins. ,,Við erum ánægð að geta veitt þennan stuðning og vonumst til að sjá þessa hugmynd að tölvuleik verða að veruleika í náinni framtíð. Það hefur orðið mikil framþróun í leikjaiðnaði á undanförnum árum hér á landi sem skapa tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga og menntun á þessu sviði.“

Sigurliðið fékk einnig frítt aðgengi að IGI, Samtökum leikjaframleiðenda í 2 ár. Skrifstofurými og leiðsögn í þrjá mánuði hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Námskeið fyrir tvo að eigin vali hjá Margmiðlunarskólanum, 12 mánaða áskrift 3 Unity Pro og gagnavistun hjá Basis í 12 mánuði. Einnig fékk sigurliðið frían aðgang að Eve Online Fanfesti frá CCP. ,,Að fá þennan stuðning mun gera okkur kleift að klára leikinn sem er markmiðið okkar á næstu misserum,“ segja þeir Hrafn Orri, Valdimar og Egill í Demon Lab.

Aðrar viðurkenningar fengu: Making Play, fyrir leik sinn Video Games Are Hard, fyrir listræna tilburði. Cosmosis, fyrir leik sinn Nega-Blast, fyrir frumleika og Daz Team, fékk fyrir leik sinn Polymorph, viðurkenningu fyrir áhugaverðasta leikinn.

Dómnefnd skipuðu þau Marina Dögg Pledel Jónsdóttir, Berglind Fanndal Káradóttir, Marco Bacnale, Stephan Schiffel og Pétur Örn Þórarinsson.

Þetta er í fjórða sinn sem Game Creator leikjakeppnin fer fram hér á landi. Keppnin fór fyrst fram árið 2010 þar sem Clockwork Alien bar sigur úr bítum og árið 2011 sigraði lið Lumenox. En á dögunum kom út leikur þeirra Auru´s Awakening - sem bar sigur úr býtum í keppninni. Tilgangur Game Creator er að efla nýsköpun í íslenskri leikjaframleiðslu og gefa nýju fólki og liðum tækifæri á að koma fram og kynna hugmyndir sínar og leikjahönnun

 http://gamecreator.igi.is