Fréttasafn



22. sep. 2020 Almennar fréttir Mannvirki

Löngu tímabært að ráðast í samgöngufjárfestingu höfuðborgarsvæðisins

„Vandinn við samgöngusáttmálann er að það er óljóst hvernig hann verður fjármagnaður,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í samtali við Arnar Þór Ingólfsson á Kjarnanum. Sigurður segir þó löngu tímabært að ráðist sé í fjárfestingu í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins og það sé gott að það sé verið ganga til verks núna, vegna áhrifa kórónuveirunnar á atvinnulífið. Mikilvægt sé að hið opinbera stígi sterkt fram í verklegum framkvæmdum á þessum tímum.

Í viðtalinu kemur fram að fjármögnun samgöngusáttmálans sé þó enn ekki að fullu útfærð, en alls stendur til að 120 milljörðum verði varið í stofnvegaframkvæmdir, Borgarlínu og uppbyggingu innviða fyrir aðra ferðamáta á næstu 15 árum. „Sveitarfélögin hafa skuldbundið sig til að leggja fram 15 milljarða og ríkið 45, en svo er helmingurinn, 60 milljarðar, sem ekki liggur fyrir hvaðan eiga að koma. Ríkið hefur skuldbundið sig til þess að leggja það fram með einum eða öðrum hætti, sama hvort það verður með beinum hætti eða í gegnum einhverja gjaldheimtu.“ 

Meirihluti borgarstjórnar að leggja stein í götu Sundabrautar

Þegar blaðamaður spyr Sigurð sérstaklega út í Sundabraut segir hann um stóra framkvæmd að ræða sem geti breytt mjög miklu, um hana hafi verið rætt mjög lengi og hún verið lengi á teikniborðinu. Opnað hafi verið á aðkomu einkaaðila að verkefninu og það telur hann að gæti orðið spennandi og hagkvæm lausn, rétt eins og Hvalfjarðargöngin voru vel heppnuð framkvæmd og verkefni. „En það sem er auðvitað óútkljáð er lega brautarinnar í Reykjavík og þar fæ ég ekki betur séð en að meirihluti borgarstjórnar sé viljandi að leggja stein í götu þessa verkefnis. Það væri mjög heiðarlegt ef þau myndu bara segja það beint út, sem þau hafa ekki treyst sér til að gera en þeirra aðgerðir miða að því að draga úr fýsileika þessa verkefnis, að þrengja að hagkvæmum kostum þannig að dýrasti kosturinn verði eina leiðin og þá er ekki víst að þetta verkefni verði fjárhagslega arðbært.“ 

Áhugi öflugra fyrirtækja á framkvæmdinni

Sigurður segir í viðtalinu á Kjarnanum að á meðan þessi mál séu óútkljáð verði ekkert af framkvæmdinni. Þegar hann er spurður hvort hann telji að íslensk verktakafyrirtæki hafi bolmagn í að ráðast í framkvæmd á borð við Sundabraut segir Sigurður að hann telji það, þrátt fyrir að mögulega myndu fyrirtæki leita samstarfs við erlenda aðila um framkvæmdina. „Ég held að íslenskir aðilar verði þarna í aðalhlutverki þó að aðrir myndu koma að. Við höfum skynjað áhuga öflugra fyrirtækja á þessu og fleiri verkefnum af sama toga, þessum samvinnuverkefnum, svo áhuginn er sannarlega til staðar,“ segir Sigurður.

Kjarninn, 20. september 2020.

Hér er hægt að nálgast annað viðtal við Sigurð á Kjarnanum undir yfirskriftinni Stjórnvöld verða að hætta að velja sigurvegara.