Fréttasafn



8. nóv. 2017 Almennar fréttir Menntun

Markaðsmál til umfjöllunar á fræðslufundi Litla Íslands

Annar fundur í fræðslufundaröð Litla Íslands verður næstkomandi föstudag 10. nóvember kl. 9-10 í Húsi atvinnulífsins en þá mun Bjarki Pétursson, sölu- og markaðsstjóri hjá Zenter, fjalla um leiðir til að finna nýja viðskiptavini og um leið varðveita þá sem fyrir eru. Litla Ísland efnir til sex opinna funda þar sem sjónum er beint að hagsmunum lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Bjarki-sm

Skráning á vef SA.

Þeir sem ekki hafa tök á að mæta á fundina geta fylgst með þeim í beinni útsendingu á nýrri heimasíðu Litla Íslands - www.litlaisland.is 

Dagskrá allra fundanna má nálgast hér (PDF)




Fundur-10.11.2017