Fréttasafn



19. mar. 2019 Almennar fréttir

Matarhátíð á Akureyri

Samtök iðnaðarins tóku þátt í matarhátíðinni „Local Food Festival“ sem var haldin í Hofi á Akureyri síðastliðinn laugardag. Á sýningunni kynnti fjöldi fyrirtækja af Norðurlandi vörur sínar og þjónustu, þ.á.m. voru fjölmargir félagsmenn SI. Sýningargestir gátu fengið upplýsingar um ýmsar nýjungar, hægt var að kaupa ýmislegt góðgæti og keppt var í matreiðslu. Auk þess var Iðnaðarsafnið með sýningu á ýmsum gömlum varningi úr matvælaiðnaðinum. 

KristjansbakariKristjánsbakarí.

MjolkursamsalanMS.

NyjakaffibrennslanNýja kaffibrennslan.

OlgerdinÖlgerðin.

VikingbruggVíkingbrugg.

SIstandurRagnheiður Héðinsdóttir, viðskiptastjóri matvælaiðnaðar á framleiðslusviði SI, stóð vaktina á matarhátíðinni.