Menntafyrirtæki ársins er BM Vallá
Á Menntadegi atvinnulífsins voru afhentar viðurkenningar til fyrirtækja sem þykja skara fram úr í menntamálum. Menntafyrirtæki ársins var valið BM Vallá og Menntasproti ársins er Atlas Primer. Tvö önnur fyrirtæki hlutu tilnefningar; AÞ Þrif og Krónan.
BM Vallá
Dómnefnd sem hafði þetta að segja um fyrirtækið: Valið byggir á því að fræðsla sé ekki jaðarverkefni heldur órjúfanlegur hluti af erfðamengi fyrirtækisins, bæði í rekstri og mannauðsmálum. Frá árinu 2020 hefur fyrirtækið lyft grettistaki í fræðslumálum innan byggingariðnaðarins og markvisst umbreytt menningu, viðhorfum og sjálfstrausti starfsfólks. Hjá BM Vallá starfar fjölþjóðlegur hópur fólks og hefur fyrirtækinu tekist að tryggja raunverulegt aðgengi allra að fræðslu með inngildandi nálgun, fræðslu á vinnutíma og lausnum sem taka mið af raunverulegum aðstæðum íslensks vinnumarkaðar. Með ástríðu, metnaði og mælanlegum árangri sýnir BM Vallá í verki hvernig fræðsla getur eflt einstaklinga, styrkt fyrirtæki og haft jákvæð áhrif á samfélagið í heild.
Menntasproti ársins
Menntasproti ársins er menntatæknifyrirtækið Atlas Primer. Í orðum dómnefndar segir: Atlas Primer sameinar tæknilega forystu, samfélagslega ábyrgð og alþjóðlegan metnað í hágæða stafrænni fræðslu. Með nýstárlegri samtalsgervigreind getur menntatæknifyrirtækið umbreytt því hvernig fræðsla og starfsþróun fara fram, gert nám aðgengilegra, mannvænna og skilvirkara fyrir ólíka hópa og jafnað aðstöðumun þeirra sem eiga undir högg að sækja í hefðbundnu fræðsluumhverfi. Atlas Primer sýnir að fjárfesting í stafrænni fræðslu er lykilforsenda samkeppnishæfni á tímum örra breytinga og hefur með alþjóðlegum árangri sínum skapað raunveruleg verðmæti bæði hér heima og erlendis. Með þessari vegferð er Atlas Primer fyrirmynd íslenskra sprotafyrirtækja og sannfærandi dæmi um það hvernig íslensk menntatækni getur haft víðtæk áhrif, eflt mannauð og lagt grunn að sjálfbærri framtíð.
AÞ Þrif
Dómnefnd hafði þetta að segja um val á AÞ Þrif: Hreingerningarfyrirtækið AÞ Þrif er með skýra framtíðarsýn og hefur fyrirtækið valið að fjárfesta í fræðslu jafnvel þótt rekstrarlegar áskoranir hefðu getað kallað á niðurskurð. Meirihluti starfsfólks er með ólíkan tungumála- og menningarbakgrunn og hefur AÞ Þrif byggt upp heildstæða fræðslustefnu sem byggir á jafnræði, aðgengi og raunverulegri starfsþróun. Með skýrri sýn á samfélagslega ábyrgð hefur AÞ Þrif ekki einungis litið á fræðslu sem tæki til betri þjónustu heldur einnig sem mikilvæga leið til inngildingar og virkrar þátttöku fólks á íslenskum vinnumarkaði til lengri tíma. AÞ Þrif sýnir með sannfærandi hætti að fræðsla er ekki kostnaður heldur fjárfesting í fólki, gæðum og sjálfbærum rekstri.
Krónan
Dómnefnd hafði þetta að segja um val á Krónunni: Krónan hefur byggt upp aðgengilega og markvissa fræðslu fyrir allt sitt starfsfólk, óháð aldri, starfshlutfalli, bakgrunni eða búsetu. Í krefjandi rekstrarumhverfi hefur Krónan valið að leggja áherslu á þverfaglega nálgun í fræðslumálum. Með öflugum Krónuskóla, markvissri nýliðafræðslu og leiðtoga- og stjórnendaþjálfun hefur fyrirtækið styrkt vinnustaðamenningu og eflt fagmennsku í framlínunni. Mælanlegar niðurstöður sýna aukna ánægju starfsfólks og sterkari tengingu við fyrirtækið .

