Fréttasafn



5. jún. 2025 Almennar fréttir Menntun Samtök menntatæknifyrirtækja

Menntaþon 2025 veitir verðlaun fyrir nýsköpun og námsgögn

Verðlaunaafhending Menntaþons 2025 fer fram í Húsi atvinnulífsins á morgun föstudaginn 6. júní kl. 17.00. Veitt verða verðlaun í tveimur flokkum: Nýsköpun í menntun og Námsgögn. Fyrstu verðlaun eru 100.000 krónur og önnur verðlaun eru 50.000 krónur. 

Að Menntaþoni 2025 standa Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS), Þróunarsjóður námsgagna, NýMennt Háskóla Íslands, IÐNÚ og Samtök menntatæknifyrirtækja (IEI).

Alls bárust 12 hugmyndir í tvo flokka, en engin lausn barst í flokkinn Kennslustofan að þessu sinni. Því hefur verið ákveðið að veita tvær viðurkenningar en þetta eru topp fjórar hugmyndirnar í hvorum flokki: 

Topphugmyndir í flokknum Námsgögn:

  • TaDa lausnir – ný nálgun í kennslu á fjármálalæsi.
  • Reiknisnilld – beitir gervigreind til að efla stærðfræðigrunn nemenda.
  • Áfram íslenska! – þróun nýs námsefnis í íslensku.
  • Lestrarappið Undralingur – stafrænt læsilausn fyrir yngstu nemendurna.

Topphugmyndir í flokknum Nýsköpun í menntun:

  • Lestrarappið Undralingur – ný nálgun á stafrænt læsi.
  • Nýsköpun og miðlun í grunnskóla – skapandi verkefni fyrir nám og miðlun.
  • Kennarakvikan – lausn sem styður við faglega þróun kennara.
  • Reiknisnilld – gervigreindarnálgun í stærðfræðinámi.

Allir eru velkomnir á viðburðinn.