Fréttasafn



9. des. 2016 Menntun

Menntaverðlaun atvinnulífsins - frestur rennur út á mánudaginn

Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 2. febrúar 2017. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála fyrir 12. desember nk.

Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki og menntasproti ársins 2017, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið.

Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru:

• að skipulögð fræðsla sé innan fyrirtækisins,

• að stuðlað sé að markvissri menntun og fræðslu,

• að sem flest starfsfólk taki virkan þátt og

• að hvatning til frekari þekkingaröflunar sé til staðar. 

Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru:

• að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja,

• samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja.

Skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta verkefni. Vinsamlega skilið greinargerð, að hámarki þrjár A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja.

Tilnefningar sendist í tölvupósti á sa@sa.is – eigi síðar en mánudaginn 12. desember nk. Ekki er tekið við tilnefningum eða gögnum eftir þann tíma.

Verðlaunin verða veitt á Menntadegi atvinnulífsins 2. febrúar 2017 en þetta er í fjórða sinn sem dagurinn er haldinn. Íslensk máltækni, menntun og fræðsla sem nýtist öllu atvinnulífinu verður í kastljósinu.