Fréttasafn



29. maí 2015 Iðnaður og hugverk

Metár hjá kvikmyndaframleiðendum

SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda hélt aðalfund í gær í húsi atvinnulífsins en SÍK er einn af öflugum starfsgreinahópum sem starfa innan Samtaka iðnaðarins.

Eitt helsta baráttumál SÍK er að koma íslenskri menningu til skila til Íslendinga á íslensku. Þar gegnir Kvikmyndsjóður veigamesta hlutverkinu. Þær upphæðir sem samkeppnissjóðurinn skilar til framleiðenda eru forsenda kvikmyndarframleiðslu. Því var staða sjóðsins talsvert til umræðu á fundinum og þung áhersla lögð á að tryggt verði að Kvikmyndasjóður nái þeirri stærð sem hann var.

Í starfsskýrslu SÍK kom fram að árið 2014 var metár í veltu vegna framleiðslu á kvikmynduðu efni á Íslandi. Heildarvelta á framleiðsluhluta greinarinnar var um 15,5 milljarðar á sl. ári sem þýðir að yfir 300% veltuaukning hefur orðið í greininni frá 2010.  

Kosið var um þrjá stjórnarmenn af sjö í samræmi við samþykktir SÍK. Stjórnin árið 2015-2016 er því skipuð Hilmari Sigurðssyni frá GunHil sem er áfram formaður. Meðstjórnendur eru Guðrún Edda Þórhannesdóttir frá Hughrif, Guðný Guðjónsdóttir frá SagaFilm, Lilja Snorradóttir frá Pegasus og Guðbergur Davíðsson frá Ljósopi. Varamenn eru Júlíus Kemp frá Kvikmyndafélagi Íslands og Hlín Jóhannesdóttir frá Vintage Pictures.