Mikil hækkun raforkuverðs er heimatilbúinn vandi
„Við höfum ekki séð viðlíka hækkanir á verði raforku síðan 2011,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í frétt mbl.is og vísar í mælingar Hagstofunnar sem sýna yfir 16% árshækkun á raforku á sama tíma og almenn verðbólga er undir 4% líkt og kemur fram í tilkynningu samtakanna.
Sigurðar segir í frétt mbl.is að landsmönnum hafi fjölgað mikið og raforkunotkun til ýmissar starfsemi aukist í takt við það, en ekkert samræmi sé við þróun í framleiðslugetu. „Því miður erum við að sjá þessar hækkanir á verði sem bitna mjög illa á öllum landsmönnum. Við öll nýtum raforku á hverjum einasta degi. Við tölum um að þetta sé heimatilbúinn vandi vegna þess að þetta er skýr birtingarmynd af þeirri kyrrstöðu sem ríkt hefur undanfarin ár í raforkumálum. Framboð á raforku hefur einfaldlega ekki haldist í hendur við vöxt og viðgang samfélagsins.“
Verri samkeppnishæfni þvert á það sem þarf núna þegar ytri skilyrði versna
Þá segir Sigurður í frétt mbl.is að áhrifin séu víðtæk bæði fyrir almenna notendur og fyrirtæki: „Hvað varðar almenna notendur, þá kemur þetta til viðbótar við ýmsar aðrar hækkanir sem við höfum séð á síðustu misserum. Þetta kemur auðvitað illa við heimilin sem búa við háan fjármagnskostnað nú þegar. Við erum að heyra dæmi um það að raforkuverð til fyrirtækja hafi í rauninni hækkað miklu meira heldur en þessar tölur segja til um. Við höfum heyrt tölur upp á allt að 30% hækkun á milli ára hjá einstaka fyrirtækjum, og það munar mjög um það. Samkeppnishæfnin er þar af leiðandi verri fyrir vikið. Þvert á það sem þarf núna, þegar ytri skilyrði eru að versna, þá er þetta það síðasta sem við þurfum.“
Hér er hægt að lesa frétt mbl.is í heild sinni.
mbl.is, 28. maí 2025.