Mikill áhugi á fræðslufundi um myglu í mannvirkjum
Mikill áhugi var á fræðslufundi um myglu í mannvirkjum sem mannvirkjasvið SI stóð fyrir í vikunni. Yfir 150 manns voru skráðir á fundinn. Fjölmargir mættu í Hús atvinnulífsins en ríflega 100 manns fylgdust með fundinum í beinu streymi.
Frummælendur á fundinum voru fjórir. Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, var fyrst í pontu og tók fyrir ábyrgð vinnuveitenda gagnvart myglu. Næstur var Sigurður Einarsson, sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu, sem var með erindið Raki og mygla í húsnæði vinnustaða. Þá tók við erindi Sylgju Daggar frá Verkvist sem bar heitið Varnir við niðurrif – fagleg nálgun, ábyrgð og lýðheilsa. Að lokum flutti Hermann Guðmundsson, yfirverkefnastjóri hjá Ístaki, erindið Vinna við myglu – hvernig tryggjum við öryggi starfsmanna. Boðið var upp á spurningar í lokin. Fundargestir lýstu yfir ánægju með fundinn.
Hér er hægt að nálgast glærur fundarins.
Hér er hægt að nálgast upptöku frá fundinum:
https://vimeo.com/1168806828?fl=pl&fe=sh



Sylgja Dögg, Hermann og Sigurður.

