Fréttasafn



10. apr. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Samtök menntatæknifyrirtækja

Nemendur leysa milljónir stærðfræðiverkefna með Evolytes

Innleiðing gagnvirka stærðfræðinámskerfisins Evolytes í íslenskum grunnskólum hefur skilað afgerandi árangri eftir fyrstu sjö mánuði verkefnisins en Evolytes er meðal aðildarfyrirtækja SI í Samtök menntatæknifyrirtækja. Verkefnið sem Andvari farsældarhraðall studdi með því að tryggja öllum skólum landsins aðgengi að kerfinu nær nú til 161 skóla og þúsunda nemenda á yngsta stigi. Í tilkynningu kemur fram að umfangsmikil notkun sé um allt land. Frá upphafi skólaárs hafi nemendur tekið virkan þátt í notkun kerfisins. Alls hafi verið leystar 6.860.609 stærðfræðispurningar, og að jafnaði svari nemendur um 254.000 spurningum á viku samhliða hefðbundnu námi. Samkvæmt gögnum verkefnisins hafi notkun aukist sérstaklega í kringum Stóru stærðfræðikeppnina en hafi haldist áfram há fram á vorönn sem bendi til viðvarandi áhuga og virkni nemenda.

Framfarir í hæfni nemenda

Þá kemur fram að niðurstöður sýni skýrar framfarir í stærðfræðihæfni nemenda í 2.–4. bekk; hæfni á framúrskarandi stigi jókst um 40–43% eftir árgöngum, erfiðleikasvæðum fækkaði um 46–59% og allt að 5,6-föld aukning mældist hjá nemendum sem nýta kerfið reglulega. Gögnin sýni jafnframt að nemendur sem noti kerfið að lágmarki tvisvar í viku nái meiri framförum en aðrir.

Bætt viðhorf og aukin vinnusemi

Einnig segir að niðurstöðurnar sýni að áhrifin nái einnig til viðhorfa og vinnubragða. Mikill meirihluti kennara telji að notkun Evolytes hafi haft jákvæð áhrif: 80% kennara telja námsárangur hafa batnað, 97% sjá aukna vinnusemi í tímum, 97% merkja jákvæðari viðhorf til stærðfræði og 90% telja sjálfstraust nemenda hafa aukist. Þessar niðurstöður bendi til þess að kerfið stuðli ekki aðeins að betri árangri heldur einnig aukinni þátttöku og áhuga nemenda á náminu. Þá upplifi kennarar einnig skýran ávinning í daglegu starfi: 100% kennara telja kerfið gagnast í starfi, 87% segja það létta undir með kennslu og 93% myndu mæla með notkun þess. Rauntímagögn um stöðu nemenda geri kennurum kleift að aðlaga kennslu betur að þörfum hvers og eins sem styrki einstaklingsmiðað nám.

Í tilkynningunni kemur fram að árangurinn undirstriki mikilvægi markvissrar innleiðingar og stuðnings við skóla og kennara. Verkefnið hafi ekki aðeins falist í að veita aðgang að stafrænu námsefni heldur einnig í þjálfun, eftirfylgni og þjónustu yfir allt skólaárið. Sterk stærðfræðikunnátta sé ein af grunnstoðum nýsköpunar og tækniframfara. Fyrir íslenskt atvinnulíf skipti miklu að efla færni nemenda á sviði STEM-greina frá unga aldri.

Evolytes_1775836705566