Fréttasafn



1. des. 2016 Iðnaður og hugverk

Norðlenska fær gæðavottun

Norðlenska sem er eitt af aðildarfyrirtækjum SI hefur fengið gæðavottun samkvæmt staðlinum ISO/FSSC 22000 frá vottunarstofunni SAI Global. Staðallinn er matvælaöryggisstaðall og nær vottunin yfir báðar kjötvinnslur fyrirtækisins og sláturhús Norðlenska á Húsavík og Akureyri.

Á vef Norðlenska segir að vottunin sé mikilvægur þáttur í gæða- og öryggismálum þar sem fyrirtækið hefur það að markmiði að vera stöðugt að bæta árangur sinn í þeim hluta framleiðslunnar sem snýr að gæða- og öryggismálum. Gæðakröfur innlendra og erlendra viðskiptavina hafi aukist á undanförnum árum og er vottunin partur af því að verða við auknum kröfum.

Framleiðsluferli á kjötvöru er í mörgum tilfellum mjög langt og nær frá slátrun á gripum til afhendingar á fullunninni matvöru til neytenda. Haft er eftir Báru Eyfjörð Heimisdóttur, gæðastjóra Norðlenska, að það felist mikil tækifæri í því fyrir Norðlenska að yfirsýn yfir allt framleiðsluferlið sé góð. „Staðallinn aðstoðar okkur við að áhættugreina allt framleiðsluferlið, frá því gripur er sóttur til bónda og þar til vara er afhent til neytenda.  ISO 22000 styður við núverandi gæðakerfi sem byggt er á HACCP og gerir okkur hæfari til þessa að bæta okkur og skila neytendanum öruggri gæðavöru.  Þetta er samvinnuverkefni allra starfsmanna þar sem lagt er upp með að allir þekki þær kröfur sem gerðar eru til matvælaframleiðslu og vinni eftir þeim. Meðal þeirra þátta sem skoðaðir eru er ástand húsnæðis, ástand og meðferð hráefnis, umgengnis- og hreinlætisreglur starfsfólks og þekkingar starfsmanna á matvælaöryggi. Við erum með gott starfsfólk og afar stolt af því að hafa fengið vottunina" segir Bára Eyfjörð.