Fréttasafn



  • ludrar

8. mar. 2010

Auglýsing Samtaka iðnaðarins fær lúður

Ein auglýsing í átaki SI gegn svartri atvinnustarfsemi fékk viðurkenningu ÍMARKS, Íslensku auglýsingaverðlaunin 2009 í flokknum almannaheillaauglýsingar. Hvíta húsið gerði auglýsinguna.

Samtök iðnaðarins eru stolt af því að átak þeirra hafi hlotið þessa viðurkenningu auglýsingafólks og óska Hvíta húsinu til hamingju.

Auglýsingin er ein þriggja sjónvarpsauglýsinga sem eru hluti af átaki Samtaka iðnaðarins gegn svartri atvinnustarfsemi og skattsvikum. Í herferðinni eru einnig nokkrar blaðaauglýsingar.

Verðlaunaauglýsingin.

Auglýsingaátak Samtaka iðnaðarins.