Fréttasafn



  • Skúlaverðlaunin 2010

3. nóv. 2010

Kristín Sigfríður Garðarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2010

 

Kristín Sigfríður Garðarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2010 fyrir ný glös á fæti á sýningunni HANDVERK OG HÖNNUN í Ráðhúsinu. Glasið er viðbót við glerlínu Kristínar sem hefur fengið nafnið diskó. Í diskó línunni eru nú fjórar gerðir af glösum, þrjár gerðir af skálum og karafla.

Verðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og afhenti Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI, þau sl. fimmtudag.

Skúlaverðlaunin eru veitt fyrir besta nýja hlutinn meðal þátttakenda. Rúmlega fjörutíu tillögur bárust að þessu sinni frá 29 aðilum. Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem var frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík.

Faglega  valnefnd skipuðu Friðgerður Guðmundsdóttir vöruhönnuður, Karólína Einarsdóttir leirlistamaður og vöruhönnuður og Halla Bogadóttir gullsmiður og framkvæmdastjóri. Niðurstaða valnefndar var að veita eina  viðurkenningu auk Skúlaverðlaunanna sem Margrét Guðnadóttir hlaut fyrir verkið „Sprelli Gnarr”. Kveikjan að verkinu er setning sem höfð var eftir núverandi borgarstjóra Jóni Gnarr sem voru: „Það er allt í lagi að vera með fíflagang ef það fer ekki út í sprell”.

Mikill fjöldi lagði leið sína á sýninguna sem haldin var í fimmta sinn sl. helgi. Gróskan og fjölbreytnin hefur aldrei verið meiri, en rúmlega 60 listamenn sýndu fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun á sýningunni.