Fréttasafn



  • Maður ársins 2010-Valdimar Hafsteinsson

30. des. 2010

Framkvæmdastjóri Kjöríss valinn maður ársins

Frjáls verslun hefur valið Valdimar Hafsteinsson, framkvæmdastjóra Kjöríss, mann ársins í íslensku atvinnulífi.

Valdimar hlýtur þennan heiður fyrir mikla fagmennsku í rekstri, ráðdeild, dugnað, hófsemi og útsjónarsemi sem gert hefur Kjörís að stöndugu og framúrskarandi fyrirtæki og einhverju þekktasta vörumerki landsins.

Valdimar sem er 44 ára framkvæmdastjóri Kjöríss í Hveragerði, hefur verið framkvæmdastjóri Kjöríss í samfellt sextán ár og byggt fyrirtækið upp ásamt systkinum sínum og móður eftir að faðir hans, og einn stofnenda Kjöríss, Hafsteinn Kristinsson féll skyndilega frá 1993, aðeins 59 ára að aldri.

Kjörís er 41 árs fjölskyldufyrirtæki og að því stendur vandað og traust fólk sem átt hefur fyrirtækið frá upphafi. Það byggir eingöngu á innri vexti og hefur aldrei yfirtekið annað fyrirtæki.

Kjörís er eitt þekktasta vörumerki landsins og er með um það bil 260 vörunúmer og framleiðir sjálft um 160 vörutegundir af ís.

Kjörís er fjórði stærsti vinnuveitandinn í Hveragerði. Það ríkir gagnkvæm virðing og hollusta á milli fyrirtækisins og starfsmanna. Við hrunið ákvað fyrirtækið að segja engum upp, lækka engin laun og minnka ekki starfshlutfallið hjá neinum.

Verðlaunin voru afhent á Hótel sögu við hátíðlega athöfn í gær.