Fréttasafn



  • Eve online

20. jan. 2011

EVE Online frumlegasti leikur ársins 2010

Netleikurinn EVE Online hefur verið valinn frumlegasti leikur ársins 2010 af lesendum leikjavefsíðunnar MMORPG.com. Lesendurnir fengu tækifæri til þess að kjósa á milli fimm leikja og hlaut EVE Online 32,7% allra atkvæða.

Á síðunni kemur fram að lesendum þykir tölvuleikurinn skara fram úr hvað varðar tækni og þróun sýndarveruleikaheimsins á netinu sem gerir það að verkum að notendur verða dyggir aðdáendur og sífellt fleiri bætast í hópinn.

Þá er einnig minnst á EVE Online keppnina sem haldin verður í sjöunda sinn í Reykjavík helgina 24. til 26. mars. Þar fá notendur allstaðar að úr heiminum tækifæri til að hittast, spjalla við framleiðendur, skemmta sér og kynnast Íslandi.