Fréttasafn



  • Borgartún 35

21. mar. 2011

Hönnun í útflutning

Íslandsstofa, Hönnunarmiðstöð Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Samtök iðnaðarins auglýsa eftir umsóknum fyrirtækja um þátttöku í þróunarverkefninu Hönnun í  útflutning. Markmið verkefnisins er að leiða saman hönnuði og fyrirtæki í samvinnu um hönnun og framleiðslu á útflutningsvörum. Þátttakendur í verkefninu munu fá framlag að upphæð 500.000 kr. til að standa straum af hönnunarkostnaði, gegn a.m.k. jafnháu mótframlagi fyrirtækisins.   

Tilgangur verkefnisins og áherslur eru eftirfarandi:

  • að leiða saman framleiðendur og hönnuði, innleiða sýn hönnunar við vöruþróun og efla þátt hönnunar innan fyrirtækja.
  • auka innlenda framleiðslu á útflutningsvörum hjá framleiðslufyrirtækjum í útflutningi, skapa ný tækifæri í útflutningi, nýta hugvit, hráefni og framleiðslumöguleika.
  • hvetja fyrirtækin til að hefja útflutning þó þau hafi einungis selt á heimamarkaði til þessa.

Verkefnið verður kynnt samhliða foropnun 10 + sýningar félags húsgagna- og innanhúss arkitekta, á HönnunarMars miðvikudaginn 23. mars kl. 17.30 að Grandagarði 16.

Þar mun Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra opna sýninguna og Jón Ásbergsson kynna verkefnið. Að lokinni dagskrá verða léttar veitingar í boði samstarfsaðila. Þar skapast einstakt tækifæri fyrir hönnuði og fyrirtæki að hittast.

Verkefnið stendur í 7 mánuði frá því að þátttakendur hafa verið valdir og verða niðurstöðurnar kynntar á sérstakri sýningu. Umsóknarfrestur fyrirtækja er til 27. apríl nk.

Þeir sem hafa hug á að skrá sig á opnunina eru hvattir til að gera það sem fyrst í síma 511 4000 eða með tölvupósti, islandsstofa@islandsstofa.is.

Nánari upplýsingar og móttaka umsókna: Björn H. Reynisson verkefnisstjóri, bjorn@islandsstofa.is, Hermann Ottósson forstöðumaður, hermann@islandsstofa.is eða inn á www.islandsstofa.is. Upplýsingar má einnig nálgast s. 511 4000.

Hönnuðum er velkomið að hafa samband við Hönnunarmiðstöð Íslands til að fá nánari upplýsingar um verkefnið s.771 2200, www.honnunarmidstod.is.