Fréttasafn



  • starfsþjálfun alcoa

29. jún. 2011

100 ungmenni við sumarstörf hjá Alcoa Fjarðaáli

Um eitt hundrað ungmenni eru í sumarvinnu hjá Alcoa Fjarðaáli í Reyðarfirði og eru flest þeirra framhaldsskóla- eða háskólanemar. Elína Jónsdóttir sérfræðingur í mannauðsteymi fyrirtækisins segir að um 500 umsóknir hafi borist frá ungu fólki um sumarstörf.

Lágmarksaldur sumarafleysingafólks hjá Fjarðaáli er 18 ár og 60% ungmennanna koma af Austurlandi en 40% úr öðrum landshlutum. Unga fólkið dreifist í ýmis störf innan fyrirtækisins en þar af vinna 86 við framleiðslu í kerskála, skautsmiðju og steypuskála.

Áður en sumarfólkið hefur störf hjá Fjarðaáli fer flest þeirra í fjögurra daga starfsþjálfun nema þeir sem stjórna vinnuvélum þurfa átta daga þjálfun. Fjarðaál leggur mikla áherslu á öryggismál og verða allir sem þar starfa að leggja sitt af mörkum til að fyrirbyggja slys og óhöpp.

Allt unga sumarafleysingarfólkið verður að sitja starfsþjálfunarnámskeið þar sem m.a. er lögð mikil áhersla á að allir leggi sitt af mörkum til að fyrirbyggja slys og óhöpp