Fréttasafn



  • Aada-verdlaun

27. sep. 2011

Engifer drykkurinn aada fær verðlaun

Engiferdrykkurinn aada vann síðastliðinn fimmtudag í alþjóðlegri drykkjavörukeppnni Water Innovation Awards  sem haldin var í Río de janero í Brazilíu í síðastliðinni viku. Í keppninni tóku þátt 80 aðilar frá 25 löndum og var keppt í 11 flokkum. Drykkurinn okkar var tilnefndur til verðlauna í fjórum flokkum en Það mun vera í fyrsta sinn sem drykkur hlýtur svo margar tilnefningar í keppninni og bar sigur úr býtum í flokknum, drykkur með besta innihaldsefnið.

Keppni þessi er mjög virt á meðal fagaðila og hefur verið haldin um árabil en dómnefndina skipa sérfræðingar hvaðanæva úr heiminum. Drykkurinn varð einnig í öðru sæti sem besta nýja vörumerkið á þessum  markaði en fyrirtækið hefur nú starfað í um tvö ár.