Fréttasafn



  • sykur

28. sep. 2012

Stjórn Landssambands bakarameistara mótmælir fyrirhuguðum sykurskatti

Stjórn Landssambands bakarameistara (LABAK) mótmælir harðlega fyrirhugaðri 800 milljón króna hækkun á vörugjöldum á matvæli sem boðuð er í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Vörugjöldin eiga að beinast að sykri í matvælum og eru réttlætt með manneldissjónarmiðum og aðgerðum gegn offitu. Litlar líkur eru á að hækkun vörugjalda á sykraðar vörur hafi áhrif á heilsu- eða holdafar landsmanna enda gerir ríkisstjórnin ekki ráð fyrir breyttri neysluhegðun heldur miðar tekjurnar við óbreytt innkaupamynstur. Auknar álögur á matvæli um 800 milljónir á ári koma hart niður bæði á fyrirtækjum og neytendum. Hækkun vörugjalda hlýtur óhjákvæmilega að hækka vöruverð, sem aftur eykur verðbólgu og þar með greiðslubyrði af lánum, bæði heimila og fyrirtækja. Stjórn LABAK skorar á stjórnvöld að draga hugmyndir um hækkun vörugjalda á matvæli til baka og gerir þá kröfu að lagt verði mat á þann kostnað, sem ríki og matvælafyrirtæki verða fyrir vegna vörugjaldskerfisins, og hann borinn saman við tekjurnar sem ríkið telur sig þurfa að hafa af vörugjöldum.

Samþykkt á stjórnarfundi 26. september 2012