Skattamál atvinnulífsins í brennidepli 9. nóvember í Hörpu
Á fundinum verða lagðar fram tillögur SA að breytingum á kerfinu á næstu fjórum árum sem miða að því að auka samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja, örva fjárfestingar, fjölga störfum og bæta lífskjör landsmanna.
Þátttakendur fá nýtt rit SA um skattamál atvinnulífsins sem kemur út sama dag.
Samtök atvinnulífsins hvetja alla áhugasama sem vilja efla atvinnulífið á næstu árum til að mæta á fundinn. Enginn aðgangseyrir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.
Boðið verður upp á kraftmikið kaffi og morgunhressingu frá kl. 8.00.
Frummælendur:
- Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA
- Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands og formaður SAF
- Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka og formaður SFF
- Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa á Íslandi og formaður Samáls
- Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff og formaður SVÞ
- Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. Grindavík
- Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika og formaður SI
- Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte á Íslandi
Samantekt: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA
Fundarstjóri: Vilmundur Jósefsson, formaður SA