Fréttasafn



  • Matvaelalandid_logo_DBL

19. mar. 2014

Vöxtur í ferðaþjónustu – er maturinn tilbúinn?

Matvælalandið Ísland boðar til ráðstefnu á Hótel Sögu fimmtudaginn 20. mars klukkan 12.00-16.30. Á ráðstefnunni verður fjallað um þróun matarferðamennsku hér heima og erlendis og tækifærin sem hún felur í sér. Spurt verður hvernig Íslendingar geta þróað sína matarferðamennsku og hvort við séum tilbúnir til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til okkar. Meðal fyrirlesara er Ami Hovstadius frá VisitSweden sem mun fjalla um reynslu Svía af markaðssetningu Svíþjóðar sem matvælalands. Þeir telja að sú stefna hafi skilað ótvíræðum árangri, meðal annars því að erlendir ferðamenn sýna sænskum mat meiri áhuga en áður og að útflutningur matvæla hafi aukist marktækt.

Laufey Haraldsdóttir, lektor í Háskólanum á Hólum, greinir frá þróun matarferðaþjónustu á Íslandi og þá mun Mário Frade, vörumerkjastjóri, Nóa Síríusi, lýsa því hvernig fyrirtækið hefur þróað markaðsáætlanir með það að markmiði að höfða til ferðamanna. Í öðrum hluta ráðstefnunnar verður fjallað um viðbrögð Íslendinga við auknum fjölda ferðamanna, framboð af íslensku hráefni  og samkeppnisstöðu,  veitingaþjónustu og hvernig menningar- og matartengd ferðaþjónusta hefur þróast á síðustu árum. Á eftir erindum verða pallborðsumræður. Aðgangur er ókeypis og ráðstefnan er öllum opin.

Vinsamlegast skráið ykkur HÉR

Að ráðstefnunni standa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Bændasamtök Íslands, Íslandsstofa, Matís, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fiskvinnslustöðva og Samtök iðnaðarins.

Dagskrá:
 

12.00 – 12.30 Skráning og hádegishressing

12.30 – 12.45 Setning: Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

12.45 – 13.30 Þróun matarferðamennsku í heiminum og reynsla Svía. Ami Hovstadius frá VisitSweden

13.30 – 14.00 Matarferðaþjónusta á Íslandi – við hvaða uppskrift á að styðjast? Laufey Haraldsdóttir,lektor, Háskólanum á Hólum

14.00 – 14.30 Markaðssetning matvæla til ferðamanna. Mário Frade, vörumerkjastjóri, Nóa Síríusi

14.30 – 14.50 Kaffihlé

14.50 – 15.10 Ísland sem matvælaframleiðandi - samkeppnishæfni og framleiðslugeta. Dr. Torfi Jóhannesson, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

15.10 – 15.25 Mikilvægt framlag matreiðslumanna til uppbyggingar á matarlandinu Íslandi. Hafliði Halldórsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara

15.25 – 15.40 Matarupplifun í gróðurhúsinu í Friðheimum Helena Hermundardóttir, garðyrkjubóndi, Friðheimum

15.40 – 16.30 Pallborðsumræður

  • Guðný Káradóttir, forstöðumaður sjávarútvegs og matvæla, Íslandsstofu
  • Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF
  • Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
  • Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís

Ráðstefnustjóri: Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri SI