Fréttasafn



  • Drífa ehf.

14. ágú. 2014

Neytendastofa sektar Drífu ehf.

Með ákvörðun sinni, dags. 29. júlí sl. lagði Neytendastofa einna milljón króna stjórnvaldssekt á Drífu, þar sem fyrirtækið virti að vettugi ákvörðun stofnunarinnar frá ágúst 2013. SI kærðu málið á sínum tíma til Neytendastofu fyrir hönd sinna félagsmanna sem framleiða og selja íslenskar ullarvörur. 

Með ákvörðuninni hafði Neytendastofa komist að þeirri niðurstöðu að merkingar Drífu á vörum frá ICEWEAR og NORWEAR teldust villandi fyrir neytendur.  Merkingarnar töldust gefa til kynna að um íslenska vöru og íslenska framleiðslu væri að ræða en þær eru framleiddar erlendis og úr erlendum afurðum.  Neytendastofa taldi að merkingarnar villtu um fyrir neytendum og væru til þess fallnar að hafa áhrif á eftirspurn. Í kjölfar ákvörðunarinnar breytti Drífa ehf. merkingum sínum.  

Við eftirgrennslan í verslunum í júlí síðastliðnum kom í ljós að vörur NORWEAR höfðu  verið merktar á ný með villandi hætti.  Í ljósi þess að Drífa hafði brotið gegn ákvörðun Neytendastofu taldi stofnunin nauðsynlegt að sekta félagið um eina milljón króna.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér:

http://www.neytendastofa.is/um-okkur/frettir-og-tilkynningar/frett/2014/07/29/Neytendastofa-sektar-Drifu-ehf/