Fréttasafn



  • Mannvirki

22. sep. 2014

Krafa um gæðastjórnunarkerfi í byggingariðnaði tekur gildi 1. janúar 2015

Mannvirkjastofnun vekur athygli á að allir sem skrá sig á byggingarleyfisskyld verk sem hönnuðir, hönnunarstjórar, iðnmeistarar eða byggingarstjórar eftir 1. janúar 2015 skulu vera með gæðastjórnunarkerfi sem samþykkt er af stofnuninni.


Krafa um gæðastjórnunarkerfi byggir á  ákvæðum 24. gr., 31. gr. og 32. gr. laga um mannvirki en samkvæmt 7. tölulið ákvæða til bráðabirgða í lögunum er veittur frestur til 1. janúar 2015 til að uppfylla ákvæðin.

Nánari upplýsingar má m.a. nálgast á vef Mannvirkjastofnunar, www.mannvirkjastofnun.is   

Innleiðing gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði - Kynningarfundir

Mannvirkjastofnun og Samtök iðnaðarins standa fyrir kynningarfundum um innleiðingu gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði í september og október. 

Fundir verða haldnir á eftirtöldum stöðum: 

  • Egilsstaðir 22. september kl. 13:00, Hótel Hérað
  • Akureyri 23. september kl. 09:00, Hótel KEA
  • Sauðárkrókur 23. september kl. 14:00, Hótel Mælifelli
  • Ísafjörður 24. september kl. 13:00, Hótel Ísafjörður
  • Borgarnes 25. september kl. 09:30, Hótel Borgarnes
  • Stykkishólmur 25. september kl. 15:00, Hótel Stykkishólmur
  • Reykjanesbær 29. september kl. 15:00, Flughótel 
  • Hella 30. september kl. 15:00, Árhús, gistihús
  • Reykjavík 9. október kl. 15:00, Grand Hótel - Hvammur 

Allir aðilar sem tengjast mannvirkjagerð eru velkomnir