Fréttasafn



15. maí 2026 Almennar fréttir Félag blikksmiðjueigenda Mannvirki

Ný stjórn Félags blikksmiðjueigenda

Ný stjórn var kosin á aðalfundi Félags blikksmiðjueigenda sem fór fram á Hótel Kríunesi 8. maí. Fundurinn var vel sóttur og mættu nánast allir félagsmenn til fundarins. Á fundinum var farið yfir starfsemi félagsins, stöðu greinarinnar og þau verkefni sem fram undan eru. Í nýrri stjórn fyrir starfsárið 2026-2027 sitja Stefán Þ. Lúðvíksson, formaður, Sigurrós Erlendsdóttir, Jónas Freyr Sigurbjörnsson, Ingi Björn Róbertsson, Ingvar Hermannsson, Gauti Fannar Gestsson og Sveinn Finnur Helgason. Ingi Björn og Ingvar koma nýir inn í varastjórn félagsins en Finnur færist úr varastjórn yfir í aðalstjórn félagsins.

Eitt helsta baráttumál félagsins hefur verið að fjölga nemendum í blikksmíðanámi og auka þar með nemaígildi innan greinarinnar. Mikil áhersla hefur verið lögð á að styrkja nýliðun í faginu enda ljóst að þörf er á fleiri iðnaðarmönnum til framtíðar.

Þessa dagana stendur Félag blikksmiðjueigenda fyrir herferð þar sem blikksmiðjur um allt land hafa verið hvattar til að hvetja starfsfólk sitt til að sækja um námið í Borgarholtsskóla og Verkmenntaskólanum á Akureyri. Samhliða því hefur félagið lagt aukna áherslu á kynningu á náminu og iðngreininni á samfélagsmiðlum með það að markmiði að vekja áhuga ungs fólks á fjölbreyttum og spennandi starfsvettvangi blikksmiða.

Að loknum aðalfundarstörfum bættust makar félagsmanna í hópinn þar sem gestir nutu saman glæsilegrar þorskmáltíðar í notalegu umhverfi hótelsins. Að því loknu hélt hópurinn í Sky Lagoon þar sem dagskránni lauk með góðri samveru og slökun.

Fundurinn og kvöldið allt mæltist afar vel fyrir meðal þátttakenda og þótti bæði vel heppnað og ánægjulegt. Fagkaup og Áltækni sáu til þess að vel var veitt af mat og drykk á aðalfundi félagsins. Haraldur Líndal Pétursson forstjóri Fagkaupa og Guðmundur Hannesson framkvæmdastjóri Áltaks sátu til borðs með félagsmönnum og mökum að loknum aðalfundarstörfum en héldu einnig stutta tölu.

4e7f96d8-fb19-46f7-88c1-bb24ddb36ada

5fbd540c-bbca-4bca-8392-38e10aa60287

68bd45fb-ebfd-4478-b113-bf3dd0e53cd2

576691a2-a3bd-443e-ac35-dd2146b6ef50

C618ab7d-1807-4415-8f05-5d5f49bc8719Haraldur Líndal Pétursson forstjóri Fagkaupa og Guðmundur Hannesson framkvæmdastjóri Áltaks.