Fréttasafn



23. feb. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Samtök rafverktaka

Ný stjórn Félags rafverktaka á Austurlandi

Ný stjórn var kosin á aðalfundi Félags rafverktaka á Austurlandi (FRA), sem er eitt af aðildarfélögum Samtaka rafverktaka (SART), sem fór fram föstudaginn 6. febrúar á Gistihúsinu Lake Hótel Egilsstaðir.  stjórn FRA eru Hrafnkell Guðjónsson formaður, Helgi Ragnarsson ritari, Ómar Yngvason gjaldkeri og Heimir Gylfason varamaður. Þá var staðfest að Hrafnkell Guðjónsson situr áfram sem aðalmaður í stjórn SART, með Helga Ragnarsson sem varamann.

Starfsemi og hagsmunagæsla í brennidepli

Hrafnkell Guðjónsson, formaður FRA, flutti skýrslu stjórnar þar sem hann fór yfir helstu verkefni liðins starfsárs. Þar kom fram að starfsemi félagsins hefði verið með svipuðum hætti og undanfarin ár, en áhersla lögð á virkt samtal innan stjórnar og öfluga þátttöku í starfi SART og Samtaka iðnaðarins. Formaðurinn fór meðal annars yfir þátttöku FRA í aðalfundi og stjórnarfundum SART, stefnumótunarvinnu samtakanna og setu í Meistaradeild SI, þar sem fjallað er um málefni byggingageirans og regluverk hans. Þá var fjallað um mikilvægi þess að sjónarmið rafverktaka heyrist skýrt í vinnu stjórnvalda, meðal annars í tengslum við breytt byggingaeftirlit.

Áhersla á fagmennsku, menntun og réttindi

Á fundinum var einnig fjallað um áskoranir tengdar ólöglegri vinnu réttindalausra og mikilvægi þess að virða lögbundin starfsréttindi rafverktaka. Þá var greint frá góðri þátttöku í námskeiði um úttektir og mælingar sem FRA stóð fyrir á síðasta ári, sem og styrkveitingu til áframhaldandi námskeiðahalds á árinu 2026. Formaður hvatti félagsmenn jafnframt til að nýta þá fjölbreyttu þjónustu sem Samtök iðnaðarins bjóða, meðal annars á sviði vinnuréttar, launamála og lögfræðiráðgjafar.

Reikningar félagsins fyrir síðasta starfsár voru lagðir fram og samþykktir án athugasemda. Engar breytingar voru gerðar á félagsgjöldum né lögum félagsins.

Aðalfundur FRA undirstrikar mikilvægi öflugra aðildarfélaga SART um allt land. Með virkri þátttöku í stefnumótun, hagsmunagæslu og faglegri þróun styrkja rafverktakar á Austurlandi sameiginlegt starf greinarinnar og stuðla að betra rekstrarumhverfi fyrir iðnaðinn í heild.

Helgi Ragnarsson ritari, Hrafnkell Guðjónsson formaður, Heimir Snær Gylfason varamaður og Ómar Yngvason gjaldkeri.

20260205_172421Hluti þeirra félagsmanna sem sóttu fundinn.