Ný stjórn Samtaka iðnaðarins
Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var tilkynnt um úrslit kosninga til stjórnar. Kosningaþátttaka var 91,84%.
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins, var kosinn formaður Samtaka iðnaðarins til tveggja ára með 93,87% atkvæða. Ellefu framboð bárust til almennra stjórnarsæta.
Þau sem hlutu flest atkvæði og setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins:
- Bergþóra Halldórsdóttir, Borealis Data Center
- Freyr Friðriksson, KAPP
- Jón Eðvald Malmquist, Eykt
- Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, Nói Siríus
- Sigurjón Rúnar Rafnsson, Kaupfélag Skagfirðinga
- Viðar Erlingsson, EVP & CDO hjá JBT Marel
Fyrir í stjórn Samtaka iðnaðarins eru:
- Hjörleifur Stefánsson, Nesraf rafverktakar
- Karl Andreassen, Ístak
- Sigrún Helgadóttir, Norðurál

