Fréttasafn



2. jan. 2017 Almennar fréttir Mannvirki

Nýr staðall fyrir fjarskiptalagnir íbúðarhúsnæðis

Nýr staðall, ÍST 151:2016 fyrir fjarskiptalagnir í íbúðarhúsnæði, tók gildi um miðjan desember en staðalinn er saminn fyrir hönnuði, verktaka, kaupendur og seljendur íbúðarhúsnæðis til að húsnæðið uppfylli nútímalegar kröfur. Þetta á við um nýbyggingar, endurnýjun fjarskiptalagna og búnaðar í eldri húsum og viðhald. Staðallinn fjallar um hönnun, efnisval, handverk og skil á verki.

Að gerð staðalsins komu Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins, Gagnaveita Reykjavíkur, Íkraft, Lota, Míla, Neytendasamtökin, Póst- og fjarskiptastofnun, RÚV, S. Guðjónsson, Síminn, Smith & Norland, Verkís og Vodafone. Yfirumsjón með verkinu var í höndum Örlygs Jónatanssonar frá SART - Samtökum rafverktaka.

Samkvæmt lögum um fjarskipti enda heimtaugar fjarskiptafyrirtækja í inntakskassa bygginga, en lagnir innanhúss frá inntakskassa eru á ábyrgð húseigenda. Póst- og fjarskiptastofnun setur reglur um frágang inntakskassa og lagna í þeim tilgangi að tryggja verndun fjarskipta og aðgang fjarskiptafyrirtækja að inntakskössum og lögnum. Að öðru leyti vísast til byggingarreglugerðar. Til þessa hafa hönnuðir og seljendur fjarskiptalagna ekki haft staðlaðar kröfur til að vinna eftir og húseigendur ekki haft tæknileg viðmið í viðskiptum sínum.

Meginmarkmið nýja staðalsins eru að stuðla að því að:

  • Kaupandi/notandi fjarskiptakerfa eigi kost á fjarskipaþjónustu í samræmi við óskir sínar og fái   notið þeirrar fjarkipta- og upplýsingatækni á heimili sínu sem í boði er og verður á komandi árum. 
  • Sjónvarps- og hljóðvarpsstöðvar, rekstraraðilar kapal- og örbylgjudreifikerfa, símafyrirtæki og aðrir sem reka fjarskiptadreifikerfi fyrir almenning geti treyst því að dagskrá þeirra og fjarskiptamerki skili sér með hámarksgæðum. 
  • Verktakar sem taka að sér lagnavinnu og tengingar hafi staðlaðar kröfur um framkvæmd verksins og frágang lagna.  
  • Efnissalar hafi staðlaða viðmiðun um lágmarksgæði tengiefnis.  
  • Stöðluð flokkun íbúða verði tekin upp eftir magni og tegundum fjarskipta- og stýrilagna. 
  • Reglur séu til um tæknilegar úrlausnir fjarskiptalagna ef deilur koma upp í viðskiptum.

 

Á vef Staðlaráðs Íslands er hægt að panta eintak af ÍST 151:2016.