Fréttasafn



1. feb. 2017 Almennar fréttir

Nýr starfsmaður hjá SI

Samtök iðnaðarins hafa ráðið Sigríði Heimisdóttur í starf sviðsstjóra hugverkasviðs SI og hefur hún störf 1. apríl næstkomandi. Sigríður tekur við starfinu af Elínrós Líndal sem hefur gegnt starfinu síðustu tvö ár.

Sigríður Heimisdóttir hefur undanfarin 5 ár starfað hjá IKEA í Svíþjóð þar sem hún hefur gegnt starfi þróunarstjóra smávöru í 3 ár og síðar verkefnastjóri sértækra nýþróunarverkefna.  Auk þess var hún verkefnastjóri alls samstarfs við hönnunar og nýsköpunarstofnanir á vegum höfuðstöðva IKEA.  Hún stofnaði hönnunar- og ráðgjafarfyrirtækið Hugvit&Hönnun árið 1995 og starfaði þá fyrir mörg íslensk og alþjóðleg fyrirtæki, þar á meðal IKEA. Frá árinu 2000 til 2008 starfaði hún sem vöruhönnuður hjá IKEA þar til hún hóf störf sem hönnunarstjóri hjá Fritz Hansen í Danmörku. Árið 2010 stofnaði hún Labland, hönnunarstofu í Malmö í Svíþjóð sem vann fyrir mörg alþjóðleg fyrirtæki.

Sigríður hefur kennt nýsköpun, hönnun og vöruþróun við Tækniskólann, Kennaraháskólann, Listaháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Auk þess hefur hún kennt í fjölda háskóla víða um heim, meðal annars í Design Academy Eindhoven í Hollandi, Royal College of Art í London, Konstfach and Beckmanns í Stokkhólmi og Musashino University í Japan. Þá hefur hún verið með sýningar á eigin hönnun á Íslandi og víða um heim og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín. Sigríður útskrifaðist með BA í vöruhönnun frá Istituto Europeo di Design í Mílanó og MFA frá Domus Academy einnig í Mílanó á Ítalíu.

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir ánægjulegt að fá Sigríði til liðs við samtökin. „Sigríður hefur mikla reynslu af stjórnun í alþjóðlegu umhverfi sem er veruleiki margra okkar aðildarfyrirtækja. Hún kemur að auki með reynslu og þekkingu á sviði vöruhönnunar og nýsköpunar sem eru þættir sem hafa vaxandi vægi í öllum iðnaði. Á hugverkasviði SI hefur verið lögð áhersla á að við Íslendingar sjáum tækifærin í breyttri neysluhegðun og áhrifum fjórðu iðnbyltingarinnar. Sigríður hefur leiðtogahæfileika og kraft til að leiða það verkefni.“