Fréttasafn



2. okt. 2018 Almennar fréttir

Nýr starfsmaður hjá SI og SA

Guðrún Reynisdóttir hefur hafið störf sem verkefnastjóri þjónustusíðu hjá SI og SA. Guðrún er með BA gráðu í upplýsingafræði með áherslu á rafræna upplýsingastjórnun og innri samskipti og diplóma-gráðu í upplýsingafræði frá Robert Gordon University í Aberdeen.

Áður starfaði Guðrún sem fræðslustjóri Alvogen við uppsetningu og innleiðingu á Alvogen Academy og við gerð kennsluefnis og myndbanda. Þá starfaði hún fyrir skilanefnd og slitastjórn Kaupþings við uppsetningu og innleiðingu á skjalastjórnarkerfi. Guðrún hefur einnig starfað hjá Skýrr, Alcan á Íslandi, Focal Consulting og hjá Morgunblaðinu.