Fréttasafn



6. nóv. 2018 Almennar fréttir

Nýr viðskiptastjóri hjá SI


Edda Björk Ragnarsdóttir hefur verið ráðin nýr viðskiptastjóri á hugverkasviði Samtaka iðnaðarins. 

Edda er lögfræðingur að mennt og er Mag.jur. frá lagadeild Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem sérfræðingur hjá fastanefnd Íslands í Genf undanfarin ár og var meðal annars starfsnemi hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf um tíma. Áður starfaði hún sem aðstoðarkennari við lagadeild HÍ, hjá LEX lögmannsstofu og Íslandsbanka. 

Viðskiptablaðið, 6. nóvember 2018.