Fréttasafn



11. mar. 2019 Almennar fréttir Nýsköpun

Nýsköpunarmót Álklasans

Nýsköpunarmót Álklasans verður haldið þriðjudaginn 19. mars kl. 14-17 í hátíðarsalnum í aðalbyggingu Háskóla Íslands. Að mótinu standa Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Samtök iðnaðarins, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samál og Álklasinn. Nýsköpunarmótið er opið öllum og þar verða erindi bæði frá fulltrúum iðnaðarins sem og háskóla- og rannsóknarsamfélagsins. Þá verða veitt hvatningarverðlaun Álklasans til nemenda á háskólastigi sem vinna að verkefnum tengdum áliðnaðinum. Fundarstjóri er Dagmar Stefánsdóttir, fjölmiðlafulltrúi Alcoa Fjarðaáls.

Hér er hægt að skrá sig. 

Dagskrá

  • Sigurður Magnús Garðarsson, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Gísli Hjálmtýsson, sviðsforseti hjá Háskólanum í Reykjavík
  • Torfi Þórhallsson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands – Snjallvæðing í áliðnaði
  • Guðmundur Ingi Einarsson, Alcoa Fjarðaál – Sjálfvirk þekjun skauta
  • Kristján Leósson, DTE - Efnagreining áls í rauntíma
  • Kaffihlé / Ísar íslenski álbíllinn til sýnis
  • Einar Karl Friðriksson, Árnason Faktor - Hugverkavernd í áliðnaði
  • Leo Blær Haraldsson, Eflu – Varmaendurvinnsla frá Fjarðaáli
  • Breki Karlsson, HRV – Orka og kolefni, sparnaður sem um munar
  • Sunna Wallevik, NMÍ, Gerosion – Nýting affallsefna
  • Guðrún Sævarsdóttir, HR – Straumhönnun fyrir kísilver
  • Hvatningarverðlaun Álklasans

Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar og spjall.