Nýsköpunarmót Álklasans fer fram í Veröld - húsi Vigdísar
Nýsköpunarmót Álklasans verður haldið í Veröld - húsi Vigdísar, sal 023, fimmtudaginn 26. febrúar frá kl. 13:00 - 16:00. Að mótinu standa Álklasinn, Samtök iðnaðarins, Samál, Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík.
Nýsköpunarmótið er opið öllum.
Dagskrá
- Opnun Nýsköpunarmóts Álklasans - Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ og Ármann Gylfason, forseti Verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík
- Litið um öxl - Rannveig Rist – forstjóri Rio Tinto á Íslandi
- Rafgreindur kísill - Guðrún Sævarsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík
- Kaffihlé
- Örerindi:
- DTE MetalliQ - ný kynslóð efnagreiningarbúnaðar fyrir bráðið álmelmi - Kristján Leósson, CTO hjá DTE.
- Alinsa: Computer vision and AI in aluminum smelters - Brynja Þorsteinsdóttir, Visk.
- Nýting Glatvarma við forhitun hráefna - Rútur Ingi Karlsson Eurometal.
- Reveal – Ál sem eldsneyti - Páll Árnason, Tæknisetur.
- Afhending nemendaviðurkenninga og kynning á nemendaverkefnum.
Í lok dagskrár verður boðið upp á léttar veitingar.
Hér er hægt að skrá sig á viðburðinn.


