Fréttasafn



8. nóv. 2018 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Nýtt Framleiðsluráð SI skipað

Á ársfundi Framleiðsluráðs SI sem haldinn var í síðustu viku var tilkynnt um nýja skipan ráðsins til næstu tveggja ára en í því eiga sæti: Andri Daði Aðalsteinsson, Límtré – Vírnet, Einar Sveinn Ólafsson, Íslenska kalkþörungafélaginu, Guðrún Halla Finnsdóttir, Norðuráli, Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, Prentmet, Magnús Freyr Jónsson, Mjólkursamlagi Kaupfélags Skagfirðinga, Margrét Ormslev, Carbon Recycling International, Sigurður Gunnarsson, Íslenskum textíliðnaði og Stefán Magnússon, Coca Cola European Partners á Íslandi.

Setja í gang verkefni til að meta losun gróðurhúsalofttegunda

Á fundinum greindi Gestur Pétursson, fráfarandi formaður ráðsins, frá helstu málum sem ráðið hefur beitt sér fyrir undanfarin tvö ár. Þar má m.a. nefna könnun á viðhorfi til íslenskrar framleiðslu, úttekt á vottunum framleiðslufyrirtækja, greiningu á hagtölum framleiðsluiðnaðar og kynningu á stuðningskerfi rannsókna- og þróunarstarfs og endurgreiðslum á rannsókna- og þróunarkostnaði fyrir framleiðslufyrirtæki. Ennfremur var haldið vel sótt Framleiðsluþing SI í desember í fyrra. Loftslagsmál eru ofarlega á baugi hjá Framleiðsluráði SI og þessa dagana er að fara af stað verkefni í samstarfi við Festu samfélagsábyrgð þar sem framleiðslufyrirtækjum verður veitt aðstoð við að meta losun gróðurhúsalofttegunda með það fyrir augum að draga úr henni.

Framleiðsluiðnaður veitir 17 þúsund manns vinnu

Á ársfundinum flutti Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, erindi um starfsumhverfi framleiðslufyrirtækja á Íslandi. Þar kom meðal annars fram að framleiðsluiðnaður skapar um 8,4% landsframleiðslu, skapar 23% gjaldeyristekna þjóðarbúsins og veitir um 17.000 manns atvinnu.  

Arsfundur-2018-5-

Arsfundur-2018-7-

Arsfundur-2018-2-

Arsfundur-2018-4-

Arsfundur-2018-3-