Fréttasafn



31. mar. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Samtök álframleiðenda á Íslandi

Ólíklegt að stríðsátök hafi jákvæð áhrif á álframleiðslu til lengri tíma

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, segir í fréttum RÚV að þrátt fyrir að verð á áli fari hækkandi og að eftirspurn aukist sé ólíklegt að það hafi jákvæð áhrif á álframleiðslu hér á landi til lengri tíma „Ég held að það hafi aldrei gerst að stríðsátök hafi haft jákvæð áhrif á þennan iðnað. Það má í rauninni segja að heilt yfir þegar það brjótast út stríðsátök, sama hvar það er, þá er það fyrsta sem gerist er að óvissustig eykst. Heimurinn er auðvitað mjög tengdur í gegnum aðfangakeðjur, framleiðslu á hrávörum og öðru.“

Í fréttinni kemur fram að heimsmarkaðsverð á áli hafi hækkað um 5% eftir að Íran gerði árásir á álver í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Bahrein en um 9% af áli heimsins er framleitt í Mið-Austurlöndum. Sigríður segir að talsverðar sveiflur séu á álverði. „Það fer jafnvel svolítið eftir því hvenær þú skoðar verðið yfir daginn.“ Í fréttinni kemur fram að á sama tíma verði að hafa í huga að í stríðsástandi hækki flutningskostnaður mikið og verð á olíu og aðfangakostnaður verði meiri. „Þannig að við erum alls ekki að sjá þetta í jákvæðu ljósi. Við erum að gera ráð fyrir að aðföng hækki í verði. Það eru þá líka aðföng sem íslenskir framleiðendur eru að nota. Raforkuverð hefur hækkað, launakostnaður er mjög hár og almennt er framleiðslukostnaður mjög hár á Íslandi.“ 

Þá kemur fram að engu að síður sé pöntunarstaða hjá framleiðendum hér á landi tiltölulega góð samkvæmt upplýsingum Samtaka iðnaðarins. „Það má alveg gera ráð fyrir aukinni eftirspurn en það er þá aðallega eftirspurn umfram framboð. Það er ákveðin gjá á milli framboðs og eftirspurnar sem hefur jákvæð áhrif til skamms tíma en ég ítreka að framleiðslukostnaður mun að öllum líkindum hækka, jafnvel frekar skart.“

Á vef RÚV er hægt að nálgast fréttina í heild sinni.

RÚV, 30. mars 2026.