Fréttasafn



17. okt. 2018 Almennar fréttir

Opinn fundur SI um atvinnustefnu

Samtök iðnaðarins boða til opins fundar í Kaldalóni í Hörpu miðvikudaginn 7. nóvember kl. 8.30-10.00 þar sem ný skýrsla samtakanna um atvinnustefnu fyrir Ísland verður kynnt. Á fundinum verður dregin upp mynd af Íslandi árið 2050 og farið yfir helstu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir á næstu árum. Kynntar verða fjölmargar tillögur að umbótum sem grípa þarf til ef lífskjör landsmanna eiga áfram að vera með því besta sem þekkist.

Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri í menntamálum hjá SI. 

Dagskrá

  • Ávarp - Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
  • Atvinnustefna - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Framtíðaráskoranir - Pétur Halldórsson, forstjóri Nox Medical, og Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappir grænar lausnir
  • Umbætur - Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri mennta- og mannauðsmála SI, Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI. 
  • Pallborðsumræður - Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Gestur Pétursson, forstjóri Elkem Ísland, María Bragadóttir, yfirmaður stefnumótunar hjá Alvotech.


Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.00.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Atvinnustefna-fundur-i-Horpu-auglysing