Fréttasafn



31. ágú. 2020 Almennar fréttir

Opnað fyrir ábendingar fyrir Hönnunarverðlaun Íslands 2020

Opnað hefur verið fyrir ábendingar fyrir Hönnunarverðlaun Íslands 2020 þar sem verðlaunað er fyrir framúrskarandi verk á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi. Hægt er að senda inn tilnefningar til miðnættis 21. september og er áætlað að afhending verðlauna og málþing fari fram 5. nóvember. Á vefsíðu verðlaunanna má senda inn ábendingar.

Um er að ræða tvo flokka; Hönnun ársins 2020 og Bestu fjárfestingu ársins 2020 í hönnun. Vinningshafar geta komið úr öllum greinum hönnunar en þurfa að skara verulega fram úr með verkefni sínu eða vinnu. 

Besta fjárfesting í hönnun 2020 er viðurkenning sem veitt er fyrirtæki sem hefur með eftirtektarverðum hætti fjárfest í hönnun og arkitektúr eða innleitt aðferðir hönnunar í grunnstarfsemi sína. Fyrirtæki sem eiga þess kost að hljóta viðurkenninguna hafa hönnun og arkitekúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.

Hægt er að benda á eigin verk og verk annarra til miðnættis mánudaginn 21. september 2020. Markmið með innsendingum er að tryggja að afburða verk fari ekki fram hjá dómnefnd og eru eigendur góðra verka hvattir til þess að tilnefna eigin verk. 

Í dómnefnd eru Sigríður Sigurjónsdóttir, formaður dómnefndar, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands og fyrrum prófessor í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands, Sigrún Birgisdóttir, arkitekt og prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands, Hörður Lárusson, grafískur hönnuður og einn af eigendum hönnunarstofunnar Kolofon, Sigrún Halla Unnarsdóttir, fatahönnuður og stofnandi og meðlimur í hönnunarteyminu IIIF, Paul Bennett, hönnunarstjóri (e. Chief Creative Officer) hjá IDEO og Margrét Kristín Sigurðardóttir, almannatengsla- og samskiptastjóri frá Samtökum iðnaðarins.

Myndin hér fyrir ofan er frá afhendingu viðurkenningar fyrir Bestu fjárfestingu í hönnun 2019 þegar Omnom hlaut þá viðurkenningu.