Fréttasafn



11. des. 2017 Almennar fréttir Menntun

Opnað fyrir tilnefningar vegna Menntaverðlauna atvinnulífsins

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar vegna Menntaverðlauna atvinnulífsins sem verða afhent í Hörpu fimmtudaginn 15. febrúar á næsta ári þegar Menntadagur atvinnulífsins verður haldinn í fimmta sinn. Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Tilnefningar á að senda á netfangið sa@sa.is fyrir mánudaginn 18. desember.

Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki og menntasproti ársins 2018, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið.

Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru:

  • að skipulögð fræðsla sé innan fyrirtækisins,
  • að stuðlað sé að markvissri menntun og fræðslu,
  • að sem flest starfsfólk taki virkan þátt og
  • að hvatning til frekari þekkingaröflunar sé til staðar.

Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru:

  • að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja,
  • samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja.

Skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta verkefni. Skila á greinargerð að hámarki þrjár A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja til grundvallar. 

Menntafyrirtæki ársins 2017 er Alcoa Fjarðaál en Keilir er menntasproti ársins. Icelandair Hotels var valið menntafyrirtæki ársins 2016 og Securitas menntasproti ársins. Marel var valið menntafyrirtæki ársins 2015 og Síldarvinnslan á Neskaupstað menntasproti ársins. Samskip var fyrsta fyrirtækið til að hljóta menntaverðlaunin árið 2014 og ferðaþjónustufyrirtækið Nordic Visitor var fyrsti menntasprotinn.

Menntafyrirtaeki-a-vefÁ myndinni eru stjórnendur Alcoa Fjarðaáls ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni, þáverandi menntamálaráðherra og Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, við afhendinguna fyrr á þessu ári.