Fréttasafn



3. des. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

Öryggislásar sem draga úr hættu á slysum vegna rafmagns

Samtök rafverktaka, Samtök iðnaðarins, Rafiðnaðarsamband Íslands og Mannvirkjastofnun hafa tekið höndum saman og afhent hátt í 1.500 öryggislása til að draga úr hættu á slysum og óhöppum af völdum óæskilegrar eða óvæntrar spennusetningar rafbúnaðar. Kjörorð verkefnisins sem kostar um 4 milljónir króna er „Einn lás, eitt líf“.

Með því að afhenda öryggislásana er verið stíga stórt skref til þess að draga úr hættu á slysum. Með notkun öryggislása getur starfsmaður tryggt að hann sé að vinna við búnað sem ekki er spennuhafa. En um leið er verið að vekja athygli starfsmanna á því að þeir bera ekki einungis ábyrgð á eigin öryggi heldur þurfa þeir jafnframt að gera ráðstafanir til að tryggja öryggi annarra sem gætu verið í hættu vegna þeirra vinnu eða bilunar í rafbúnaði.

Viðtökur við lásunum hafa verið góðar og allir þeir sem nú þegar hafa fengið lása ætla að ganga úr skugga um að þeir verði notaðir til að gera búnað spennulausan þegar verið er að vinna við hann. Félagsmenn fá sendan öryggislás sér að kostnaðarlausu með því að skrá sig á „Mínar síður“ heimasíðu RSÍ og gefa þar upp nafn og GSM símanúmer.

Oryggislas-mynd